The President of Iceland

11/19/2024 | Press release | Distributed by Public on 11/19/2024 07:37

Þúsund dagar frá innrás

Fréttir | 19. nóv. 2024

Þúsund dagar frá innrás

Forseti sendir kveðju til úkraínsku þjóðarinnar sem markar þau tímamót að 1000 dagar séu liðnir frá innrás Rússa í landið árið 2022. Kveðjan var á myndbandsformi og send ríkissjónvarpi Úkraínu, þar sem hún var spiluð ásamt kveðjum frá öðrum þjóðhöfðingjum þann 19. nóvember.

Í kveðjunni ítrekar forseti stuðning Íslands við Úkrínu og segir Íslendinga bera djúpa virðingu fyrir þrautseigju úkraínsku þjóðarinnar.

Áður hafði forseti sent heillaóskir til Volodimír Selenskí og úkraínsku þjóðarinnar á þjóðhátíðardegi Úkraínu þann 24. ágúst.

Deila