Results

Government Offices of Iceland

10/11/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/11/2024 09:27

Traust varnarsamstarf áréttað á fundi með yfirherforingja Bandaríkjahers

Áskoranir í öryggismálum, samstarf á norðurslóðum og tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna voru meðal málefna sem rædd voru á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Charles Q. Brown, formanni bandaríska herráðsins. Um var að ræða fyrstu heimsókn formanns bandaríska herráðsins til Íslands í áraraðir.

"Við áttum gott samtal um þróun öryggismála og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í dag bæði á hernaðarsviðinu og vegna margvíslegra fjölþáttaógna," segir Þórdís Kolbrún. "Fundurinn gaf gott færi á að ræða samstarf ríkjanna og þær áskoranir sem við er að eiga í öryggis- og varnarmálum í dag í ljósi innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og vaxandi spennu í alþjóðasamskiptum. Ísland og Bandaríkin hafa verið að efla með sér samstarf á síðustu árum með áherslu á eftirlit og viðbragð á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, sem styrkir líka öryggi allra bandalagsríkja."

Brown heimsótti Ísland í tengslum við fund yfirmanna hermála norðurskautsríkjanna sjö sem Ísland tók að sér að halda í vikunni. Þar var rætt um þróun öryggismála og áskoranir sem tengjast loftslagsbreytingum, siglingum og hernaðarumsvifum á norðurslóðum.

"Það var heiður að sækja þennan fund í boði íslenskra samstarfsaðila okkar," segir Charles Q. Brown, formaður bandaríska herráðsins. "Norðurslóðirnar skipta máli, og ekki einungis í dag, heldur til framtíðar litið. Sem NATO-þjóðir á norðurslóðum er því afar mikilvægt að við höldum áfram okkar virka og samhenta samstarfi til að takast á við núverandi og komandi öryggisáskoranir og stuðla þannig að farsælum og öruggum norðurslóðum."

Brown fundaði jafnframt með Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, heimsótti öryggissvæðið í Keflavík og kynnti sér samstarf Íslands og Bandaríkjanna við kafbátaleit.