The President of Iceland

10/21/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/21/2024 05:28

Forsetahjón í Berlín

Fréttir|21. okt. 2024

Forsetahjón í Berlín

Forsetahjón eru nú stödd Þýskalandi vegna 25 ára afmælis norrænu sendiráðanna í Berlín.

Í tilefni afmælisins er efnt til hátíðardagskrár með þátttöku þjóðhöfðingja og fulltrúa konungsfjölskyldna Norðurlanda. Meðan á heimsókninni stendur á forseti einnig tvíhliða fundi með forseta Þýskalands og forseta Finnlands. Þá hittir hún fulltrúa Íslendingasamfélagsins í Berlín og heimsækir tvo háskóla í borginni.

Sendiráð Norðurlandanna í Berlín voru opnuð þann 20. október 1999 og reka þau þar sameiginlegu menningarmiðstöðina Felleshus þar sem efnt er til ýmissa norrænna menningarviðburða. Fyrirkomulagið, sem er einstakt á heimsvísu, hefur reynst afar vel og orðið til þess að efla enn frekar náið samstarf Norðurlanda í Þýskalandi.

Á fjórða hundrað gesta sækja 25 ára afmælishátíðina sem fram fer á sendiráðssvæðinu síðdegis í dag, mánudaginn 21. október. Þar verða tónlistaratriði og mun forseti Þýskalands flytja ávarp, auk forseta Íslands og forseta Finnlands, og einnig Hákon, krónprins Noregs, og Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar. Í kvöld býður svo Þýskalandsforseti þjóðhöfðingjum og ríkisörfum Norðurlanda auk sendinefnda til hátíðarkvöldverðar í forsetahöllinni, Schloss Bellevue. Þar flytur Friðrik X. Danakonungur ræðu fyrir hönd Norðurlandaþjóðanna.

Áður en hátíðardagskráin hefst í dag bjóða Frank-Walter Steinmeier Þýskalandsforseti og Elke Büdenbender, eiginkona hans, forsetahjón Íslands velkomin með athöfn við forsetahöllina, þar sem þjóðsöngvar beggja landa verða leiknir að viðstöddum heiðursverði. Við tekur tvíhliða fundur forseta Þýskalands og Íslands, sem Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sitja einnig ásamt forsetaritara. Þá á forseti hádegisverðarfund með Alexander Stubb, forseta Finnlands.

Sjá fréttatilkynningu.

Deila